20október

þetta er búið

ok... ég veit ekki alveg hvað ég var að hugsa....

það er ekki séns að ég nenni að halda þessari síðu gangandi

bloggtími minn er liðinn... löngu liðinn, ég meina þið sjáið hvað þessar færslur hjá mér eru leiðinlegar.....

ég er samt ekki hætt á demöntunum né pigeklub.... :) svo þið aðdáendur (ef það eru einhverjir) þurfið ekki að örvænta

en takk fyrir mig, þetta hefur verið ánægjulegur tími !!! Óákveðinn

Kveðja
-Marta
20. október 2006 klukkan 02:30
Marta Björnsdóttir
2 athugasemdir
30september

jæja

  • Heima á föstudagskvöldi
  • lesa Twelve
  • horfa á Wedding date
  • Home - Michael Bublé á repeat
  • leikur á morgun
  • Stjarnan - HK
  • miss world
  • 3310*
  • snake
  • þreyta
  • svefn
  • góða nótt

*Hef veirð að notast við hinn 6 ára gamla nokia 3310 símann minn núna undanfarna daga. Er í einhverjum svona Back to the Future fíling en
þessum síma má eiginlega líkja við TALSTÖÐ miðað við tæknilegu hipp símana sem allir eru með í dag. Það liggur við að maður þurfi að segja "skipti" eftir hverja setningu og "yfir og út" þegar samtalinu er lokið.
Ég er samt að enduruppgötva snake og jafnvel space impact ennþá meira 
þetta eru bestu leikir í heimi

30. september 2006 klukkan 06:22
Marta Björnsdóttir
4 athugasemdir
27september

stórveldi?


vvvaaaaáá hvað það var ljúft að VINNA ÍSLANDSMEISTARANA ÍBV áðan.

staðan í hálfleik 15-11 eða fyrir þeim en lokastaða 27-24 fyrir okkur HlæjandiSvalur Leikurinn samt byrjaði með því að staðan var 8-2 fyrir ÍBV! svekkjandi

það er ekki nóg að hafa eintóma útlenska atvinnumenn í liðinu, það verður að kunna að spila handbolta líka Ullandi

27. september 2006 klukkan 04:54
Marta Björnsdóttir
3 athugasemdir
20september

jiii

Ok vá það er komin 20. september, mér finnst eins og ég hafi bloggað í gær.... svona næstum Óákveðinn

Ég og hinar HK stúlkur fórum í smá road trip 8-10 sept og tókum þátt í sjallamótinu á Akureyri. Það gekk fínt, kepptum 3 leiki og uppskárum 2. sætið.
Ballið á laugardeginum (í Sjallanum => sjallamót) var afskaplega hressandi. Sálin hélt uppi svaka stemningu langt fram á nótt. Sumir misstu sig meira í gleðinni en aðrir, en það verður einhver að sjá um þaðGlottandi
Það er hægt að sjá einhverjar myndir af þessu á www.blog.central.is/meistara_hk

Eftirminnilegast í ferðinni var samt þegar við keyrðum næstum því út af af hlátri á leiðinni heim, þegar einn ÍR drengurinn í bílnum fyrir framan ákvað að stinga rassgatinu út um gluggan og hanga þannig nokkra stund.




Rockstar búið og ég get ekki sagt annað að ég sé ánægð með niðurstöðuna. Ég hélt samt að Toby myndi vinna en..... Lukas á þetta alveg skilið
Mér finnst hann líka svo klikkað sætur Skömmustulegur 



hann er svo mikil dúlla..... veit samt ekki hvort hann yrði hress með að heyra það hahahahah

BUSABALLIÐ... eða nýnemaballið eins og það heitir víst í versló var sveitt, of stutt en ógeðslega skemmtilegt.....

Vinkonur mínar tvær, nefni engin nöfn, sem ég fór með... eða ætlaði að fara með myndu þó ekki vita hvernig ballið var því önnur  KOMST EKKI Á BALLIÐ og hin FÓR HEIM EFTIR 15 MÍN, sökum ÖLVUNAR....

Ok, það á eiginlega ekki að hlægja að þessu en ég bara VERÐ... því þetta var mesta feis á ykkur báðar síðan ég hef kynnst ykkur.

Endalaust að skjóta á mig, segjandi að ég sé alltaf full, sem er alls ekki satt, og e-ð en sá hlær best sem síðast hlær... hahahahhahaha


Nú er samt djammkvóti ársins búin, svona nánast, enda keppnistímabilið að byrja.

Við eigum fyrsta leik  á þriðjudaginn næstkomandi við ÍBV og svo aftur leik á laugardeginum eftir það við Stjörnuna....

En ætli maður haldi ekki áfram að læra. Ótrúlegt hvað það er strax mikið að gera í þessum skóla. Það er búið að drita niður á okkur endalaust af prófum, ritgerðum og skilaverkefnum..... og ég sem hélt að 6.bekkur væri mest bara upprifjun og chill, ein aðeins að misskilja!

Aber, hasta luego meine freunde....
-Marta

20. september 2006 klukkan 21:25
Marta Björnsdóttir
1 athugasemd
06september

tannlæknar..


Held ég hafi sett heimsmet í stuttri tannlæknaheimsókn áðan en hún tók, án gríns, 4 mínútur.
Átti tíma kl 3
Fór inn 3 mín yfir
kom út 7 mín yfir

það tók manninn 2 mín að stilla stólinn og svo 2 mínútur að skoða á mér kjaftinn og segja mér að hann hafi aldrei fengið jafn leiðinlegan sjúkling....

meinandi þá að það væri aldrei neitt að mér...

ég var samt viss um að ég væri með skemmd, stútaði 400g af tyrkis peber molum á 2 vikum og ég er ekki þessi þolinmóða týpa sem sýg molana þangað til þeir hverfa..... ég er bryðjari

þessar 4 mínútur kostuðu samt 2930kr, kannski maður ætti að verða tannlæknir

-Marta


06. september 2006 klukkan 22:07
Marta Björnsdóttir
4 athugasemdir
05september

tannpína

 Jæja þá er allt nammið sem ég keypti úti og í fríhöfninni búið og það eina sem ég uppskar af því var magapína og tannpína, en það er allt í lagi þetta var svo gott og svo er ég hvort sem er að fara til tannlæknis á miðvikudaginn.....

Það er svo skrítið hvað maður verður ráðvilltur þegar það er ekki æfing á daginn. Eins og í dag þá var okkur gefið frí og ég vissi ekkert hvað ég ætti af mér að gera þegar ég kom heim úr skólanum. Svo ég ákvað að leggja mig í hálftíma eða svo.

Það endaði auðvitað með því að ég vaknaði 2 1/2 síðar með feitt koddafar á kinninni þegar systir mín ruddist inn í herbergið til að fá lánaða fótboltasokka, ég hefði annars örugglega sofið þangað til á morgun....


En það er víst bíó í kvöld á United 93...


blee

05. september 2006 klukkan 00:33
Marta Björnsdóttir
Engin athugasemd
04september

myndir


Jæja... (það sagði mér e-r að það þýddi eista á pólsku!! en....) 

ég er núna búin að sitja sveitt síðustu daga að setja inn myndir frá Benidorm á www.blog.central.is/demantarnir og ég er ekki alveg búin....

Þetta blog.central dæmi er líka alveg að fara með mig, þessi síða hrynur í hvert einasta skipti sem ég reyni að gera e-ð... en ég reyni að halda ró minni

Helgin:
- fór í partý á föstudaginn sem var haldið í tjaldi í Nauthólsvík. Án efa eitt skemmtilegasta partý sem ég hef farið í:D
 - You, Me and Dupree á laugardaginn með Agnesi Heiðu frænku:) Ég varð samt fyrir smá vonbrigðum með myndina en hún var samta alveg fín. Lenntum í smá veseni þegar mér tókst að læsa lyklana mína inn í bíl... það kemur nú fyrir besta fólkÓákveðinn
- á sunnudag kl 9 brunuðum við HK stúlkur á Laugarvatn til að keppa æfingaleik við Akureyri (gátuð þið ekki verið aðeins ófrumlegri við að velja nafn á þetta lið!).  Hann gekk... ekki vel... hann bara gekk, við unnum en ég held að ég hafi átt skot dagsins þegar ég hitti ekki á autt mark.....

Hversu óþolandi er samt að fara með kvef út til Spánar, fá meira kvef á Spáni því loftkælingin er biluð og fá enn meira kvef þegar meður kemur heim því það er 5 gráðu hiti í ÁGÚST á Íslandi........ ég ætti kannski að fá mér koníak?

en ég verð samt að hætta að fara svona seint að sofa....!

góða nótt elsku blóm
-Marta
04. september 2006 klukkan 06:06
Marta Björnsdóttir
Engin athugasemd
29ágúst

mun þessi endast....?


Ég tók eftir því um daginn að ég var ekki búin að blogga í hina síðuna mína (www.blog.central.is/-marta) síðan í janúar, og ákvað þá að breyta aðeins til.

Ég veit ekki hversu lengi þessi síða mun endast, þetta blogg-æði fer nú að verða svolítið þreytt, en við sjáum til ....

Ég ætlaði að fara skrifa niður einhverjar endurminningar úr Benidorm ferðinni sem ég kom heim úr í síðustu viku, en þreytan er e-ð að segja til sín svo ég læt það bíða betri tíma....

Lennti samt í smá fyndnu atviki í vinnuna um helgina....
Ég var í mesta sakleysi mínu að afgreiða hjón á þjónustuborðinu, þau voru mjög kunnugleg og ég geri mér allt í einu grein fyrir því að þetta eru foreldrar Huldu Lindar, bestu vinkonu minnar í 6.bekk í Hjallaskóla. Samt búina ð steingleyma hvað þau heita, en mundi það á þessari stundu..... held samt að hún sé Kristjánsdóttir... eenn..

Ég: eruð þið ekki mamma og pabbi Huldu Lindar?
mamman: jú... bíddu ég kannast e-ð við þig
Ég: Ég heiti Marta... var vinkona hennar í Hjallaskóla
mamman: já auðvitað... en æðislegt að sjá þig, ég var einmitt að skoða minningarbók frá Huldu í dag og var að lesa það sem þú skrifaðir (tilviljun.is)
(og þess má geta að mamma hennar er sú hressasta í heimi)
svo tók við smá spjall um skóla, kærasta, búsetu o.fl.... EN svo...
mamman: kristján (pabbinn)...ég er með MYNDAVÉLINA út í bíl, þú verður að sækja hana....
Ég: (ok ég vona að þau séu ekki að fara taka mynd af mér)
mamman: ég bara verð að taka MYND af þér
Ég: (fokk)

ok... nenni ekki að gera þetta í samtalsformi lengur... en þetta fór þannig að pabbinn fór út í bíl og náði í MYNDAVÉLINA og svo smellti mamman af mynd meðan ég var önnum kafin við að afgreiða annan viðskiptavin (það var svo mikið að gera) og það voru svona 10 mans sem stóðu við þjónustuborðið á meðan og þetta var svo vandræðalegt en um leið smá fyndið

ég sæi mömmu mína í anda smellandi myndum af öllum æskuvinum mínum sem hún hittir úti í bæ.......

haha já... systir mín er á sínu fysta menntaskólaballi núna, Busaball MK. Ég bjargaði henni frá þeim algengubusamistökum að mæta á réttum tíma á ball.... eða þegar húsið opnaði.... hún ætlaði meira að segja að fara tímanlega... vera mætt fyrr... klárlega ekki nógu kúl!

en á meðan systir mín skemmtir sér á balli, sit ég heima i náttfötunum að blogga
ég veit ekki hvort ég á að gráta eða hlægja

reyndar myndi ég aldrei nenna á þetta ball... held ég sé vaxin upp úr menntaskólaböllunum.... allavega að mestu leyti.

hvernig stendur samt á því að þegar ég blogga þá verður það alltaf einhver ritgerð... þó ég hafi í raun ekki frá neinu merkilegu að segja..... undarlegt

fór á æfingu í dag samt, vá hvað það var gott á fá almennilega útrás..... áróra er samt hætt.... ég á eftir að sakna hennarSkömmustulegur


held þetta sé samt komið gott í bili....
góða nótt
-Marta





29. ágúst 2006 klukkan 05:34
Marta Björnsdóttir
Engin athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Leit

Innskráningar kubbur